Auglýsing um próf til endurskoðunarstarfa

6.7.2021

Auglýsing um próf til endurskoðunarstarfa

Með vísan til laga nr. 94/2019, um endurskoðendur og endurskoðun, er fyrirhugað að halda próf til löggildingar til endurskoðunarstarfa í október 2021 sem hér segir:

Próf í endurskoðun og reikningsskilum:

Fyrri hluti föstudaginn 8. október.

Seinni hluti mánudaginn 11. október.

Prófin hefjast kl. 9 hvorn dag og standa til kl. 16.

Próf í skattalögum, félagarétti, kostnaðarbókhaldi og stjórnendareikningsskilum:

Föstudaginn 15. október.

Prófið hefst kl. 9 og stendur til kl. 14.

Um efnissvið prófanna vísast til 3. gr. reglugerðar nr. 595/2020 um próf til löggildingar til endurskoðunarstarfa.

Próftökugjald er kr. 330.000.- fyrir próf í endurskoðun og reikningsskilum og kr. 110.000.- fyrir próf í skattalögum, félagarétti, kostnaðarbókhaldi og stjórnendareikningsskilum. Greiða þarf staðfestingargjald fyrir hvort próf sem er 20% af fjárhæð prófgjalds.

Væntanlegir prófmenn skulu skila umsóknum fyrir laugardaginn 7. ágúst nk. til prófnefndar. Tilkynningar sendist formanni prófnefndar, Jóni Arnari Baldurs, Urðarbraut 9, 200 Kópavogi eða í tölvupósti á jon.a.baldurs@gmail.com.

Tilkynningu skulu fylgja nafn prófmanns og kennitala, heimilisfang, tölvupóstfang og staðfesting um að fullnægt sé skilyrðum 5. og 7. tl. 1. mgr. 2. gr. laga nr. 94/2019. Próftakar fá þá senda reikninga fyrir prófgjaldinu og skal allt prófgjaldið vera greitt fyrir 15. september nk.

Prófnefndin mun boða til fundar með prófmönnum fyrir lok ágúst nk.

Reykjavík, 6. júlí 2021.

Prófnefnd löggiltra endurskoðenda


Við notum kökur til að auðvelda þér að vafra um vefinn. Nánari upplýsingar. Loka kökum
Þetta vefsvæði byggir á Eplica