Listi yfir endurskoðunarfyrirtæki

Endurskoðun skal fara fram á vegum endurskoðunarfyrirtækis sem hefur starfsleyfi og er skráð í endurskoðendaskrá. Endurskoðendum er skylt að stofna félag um rekstur endurskoðunarfyrirtækis í því formi sem þeir sjálfir kjósa, þar á meðal með takmarkaðri ábyrgð.

Í lögum um endurskoðendur og endurskoðun nr. 94/2019 er gerð krafa um það að meiri hluti atkvæðisréttar í endurskoðunarfyrirtæki skuli vera í höndum endurskoðenda eða endurskoðunarfyrirtækja sem hlotið hafa viðurkenningu á Evrópska efnahagssvæðinu eða í aðildarríkjum stofnsamnings Fríverslunarsamtaka Evrópu eða í Færeyjum. Þá er gerð krafa um það í lögum að meiri hluti stjórnarmanna í endurskoðunarfyrirtæki séu endurskoðendur eða fulltrúar endurskoðunarfyrirtækja. Skal endurskoðunarfyrirtæki tryggja að nöfn og heimilisföng eigenda fyrirtækisins séu aðgengileg almenningi.

Gerð er krafa um það í lögum að endurskoðunarfyrirtæki hafi formlegt gæðakerfi til að tryggja gæði endurskoðunarinnar og gæði starfa endurskoðanda.

Endurskoðendaráð veitir endurskoðunarfyrirtækjum réttindi til endurskoðunarstarfa á grundvelli laga nr. 94/2019 um endurskoðendur og endurskoðun.


Við notum kökur til að auðvelda þér að vafra um vefinn. Nánari upplýsingar. Loka kökum
Þetta vefsvæði byggir á Eplica