Endurskoðendaráð leitar eftir gæðaeftirlitsmönnum

7.5.2021

Endurskoðendaráð mun framkvæma gæðaeftirlit með störfum endurskoðenda og endurskoðunarfyrirtækja á árinu 2021 í samræmi við ákvæði laga um endurskoðendur og endurskoðun, nr. 94/2019, og reglur um framkvæmd gæðaeftirlits með störfum endurskoðenda, nr. 1091/2020. Gert er ráð fyrir að gæðaeftirlit fari fram í september, október og nóvember 2021.

Endurskoðendaráð leitar nú eftir gæðaeftirlitsmönnum. Í samræmi við 32. gr. laga nr. 94/2019 skulu gæðaeftirlitsmenn hafa viðeigandi menntun og reynslu í endurskoðun og reikningsskilum. Geta starfandi endurskoðendur og starfsmenn endurskoðunarfyrirtækja verið gæðaeftirlitsmenn.

Endurskoðendaráð mun halda námskeið fyrir þá sem verða valdir til að taka þátt í gæðaeftirlitinu og er áætlað að námskeiðið verði haldið um mánaðarmótin maí/júní.

Áhugasamir eru beðnir að senda inn umsóknir á netfangið endurskodendarad@endurskodendarad.is eigi síðar en þann 19. maí 2021. Í umsóknum skal gera grein fyrir menntun og starfsreynslu af endurskoðun og tengdum störfum. Þá er óskað eftir upplýsingum um þjálfun í gæðaeftirliti og reynslu af framkvæmd gæðaeftirlits. 


Við notum kökur til að auðvelda þér að vafra um vefinn. Nánari upplýsingar. Loka kökum
Þetta vefsvæði byggir á Eplica